Áfrýjunarnefnd neytendamála 2021-2025
Ákvarðanir Neytendastofu má kæra til sérstakrar nefndar, áfrýjunarnefndar neytendamála. Heimild til áfrýjunar er að finna í 4. gr. laga um Neytendastofu, nr. 62/2005. Í áfrýjunarnefnd neytendamála sitja þrír menn og jafn margir til vara, skipaðir af ráðherra til fjögurra ára í senn.
Formaður nefndarinnar og varamaður hans skulu fullnægja skilyrðum til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara.
Aðalmenn:
Halldóra Þorsteinsdóttir, héraðsdómari, formaður.
Áslaug Árnadóttir, lögmaður, nefndarmaður.
Gunnar Páll Baldvinsson, lögfræðingur, nefndarmaður.
Varamenn:
Hjördís Halldórsdóttir, lögmaður, varaformaður.
Víðir Smári Petersen, lögmaður, dósent, varamaður.
Sindri M. Stephensen, lögmaður, dósent, varamaður.