Samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga
Tilgangur nefndarinnar er að auka traust og formfestu í samskiptum ríkis og sveitarfélaga, bæta stjórnsýslu hins opinbera og efla gagnkvæman skilning á viðfangsefnum og þörfum hvors aðila fyrir sig. Nefndin skal fara yfir einstök mál sem vísað er til hennar og jafnframt skal nefndin taka sérstaklega upp á fundum sínum umræðu um með hvaða hætt er unnt að bæta verkferla og samskipti þessara stjórnsýslustiga sbr. 6. mgr. 128. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Nefndin er þannig skipuð:
- Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins
- Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins
- Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Núgildandi samstarfssáttmáli er frá 2. apríl 2008 og er hann ótímabundinn en með ákvæði um endurskoðun ef annar hvor aðili telur ástæðu til.